Frétt — N?mi Fannsker — 27. 2. 2009
Bjóða sig fram
Þuríður og Jakobína eru samvaxnar á öxl og handarkrika. Þær hafa ekki áður tekið þátt í pólitísku starfi - en hafa fylgst mikið með sjónvarpsþáttunum Vesturálmunni.

Síamstvíburarnir Þuríður Erlendína og Jakobína Svava Evu- og Tómasardætur, hafa látið undan áskorunum stuðningsmanna sinna og ákveðið að bjóða sig fram. Þuríður í 5.-8. sæti í prófkjöri Frjálslynda flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður og Jakobína í 2.-8. sæti í prófjöri Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Suðvesturkjördæmi.

Þuríður og Jakobína eru báðar fornleifafræðingar að mennt - með doktorspróf í meðferð og varðveislu inkahljóðfæra.

Þær vilja slá skjaldborg um heimilin í landinu og atvinnulífið og efla Landhelgisgæsluna. Og skoða aðild að ESB með opnum hug.

UNGUR MAÐUR

með yfirgripsmikla þekkingu á kjarnaofnum, óskar eftir starfi úti á landi.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: