Samningar hafa náðst við hina virtu Simon Wiesenthal stofnun um að hún flytji höfuðstöðvar sínar og alla starfsemi í Kópavoginn. Í langri og ítarlegri yfirlýsingu frá stofnuninni segir m.a. að "allir nasistarnir séu dauðir" og að "Ísland sé nýr og spennandi markaður."
Íslensk stjórnvöld hafa enga yfirlýsingu gefið út um málið, en embættismaður sem óskaði nafnleyndar sagði mikilvægt að nornaveiðar séu stundaðar af fagmönnum.
Nýjar vörur
Latex, leður, terlín, asbest...
Perragarðurinn
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.