Frétt — N?mi Fannsker — 30. 10. 2008
Sneri við blaðinu
Sigurður hyggst helga líf sitt baráttunni fyrir frjálsum Færeyjum.

Sigurður Einarsson fyrrverandi bankastjóri Búnaðarbankans, KB banka og Kaupþings, hefur snúið við blaðinu og hyggst helga sig baráttunni fyrir frjálsum Færeyjum.

„Já þetta er rétt. Ég hef gengið til liðs við samtökin Frjálsar Færeyjar og mun setja allt mitt í baráttuna. Og þá meina ég allt. FRELSUM FÆREYJAR!,“ hrópaði Sigurður á blaðamann Baggalúts.

Sigurður ætlar ekki bara að gefa samtökunum krafta sína og tíma, heldur ætlar hann líka að gefa þeim allar eigur sínar. Þar á meðal gullfiskinn sinn; Pésa, afar vel með farna hrífu og sjö rúllur af límbandi.

Varúlfur

Einhleypur varúlfur, reyklaus, óskar eftir að leigja gluggalaust herbergi með aðgengi að salerni, helst í kjallara. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: