„Þetta var mjög vandræðalegt, ég bara horfði á reimarnar á skónum og mundi ómögulega hvernig ég átti að hnýta slaufu,“ segir Snæfriður Einarsson – en hann varð fyrir heldur óskemmtilegri lífsreynslu í hádeginu í dag.
„Þetta var soldið eins og þegar ég fer í krummafót eða úlpuna öfuga – bara asnalegra,“ bætir hann við og segir atvikið hafa verið sérlega vandræðalegt því hann hafi verið að flýta sér í mjög mikilvæga aðgerð ásamt starfsfélögum sínum. „En þeir hlógu nú bara að þessu, vanir svona veseni á kallinum – þannig að ég batt bara rembihnút í hvelli og drei mig af stað,“ sagði þessi seinheppni taugaskurðlæknir að skilnaði.
Tapað fundið
Meydómur tapaðist á horni Snorrabrautar og Hverfisgötu miðvikudagskvöldið 4. október. Fundarlaun.
A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.