Frétt — N?mi Fannsker — 28. 4. 2008
Merk æla finnst á Ísafirði
Sigmar telur mikla mildi að ekki hafi farið illa fyrir Mick Jagger dægurlagasöngvara - því eins og sjá má er ælan hættulega girnileg.

Ein merkasta æla sögunnar er talin hafa fundist um borð í skútu í Ísafjarðarhöfn um helgina. Sigmar Ólafsson tamningamaður fann æluna í gærmorgun, en hann er eigandi skútunnar. Fundurinn kom honum í opna skjöldu.

„Já, nei vá, ég bjóst nú ekki við því að þessi merka æla væri í mínum fórum - það er sko eitt sem er alveg víst sko,“ sagði Sigmar í samtali við Baggalút. „Ég hef leigt þessa skútu forvitnum ferðamönnum undanfarin ár, þeirra á meðal Mick Jagger dægurlagasöngvara og ég geri ráð fyrir að ælan sé frá honum komin. Þetta er voðamikið hann eitthvað.“

Ælan þykir, sem fyrr segir, ein merkasta æla sögunnar - enda hafa hvorki meira né minna en 63 kunnir listamenn kafnað í henni, auk nokkurra stjórnmálamanna og trúarleiðtoga. Þeirra á meðal eru Jimi Hendrix, Marylin Monroe, Indira Ghandi og Olof Palme - svo fáeinir séu nefndir.

Sigmar ætlar að eiga æluna. „...en ég geri nú ráð fyrir að læsa hana inni í skáp svona til öryggis sko,“ segir hann að lokum.

Stúlka óskast

til að geta barn með síðasta íbúa afskekktrar eyjar á Breiðafirði. Gott kaup.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: