„Þetta eru alvöru túttur, get ég sagt þér,“ segir Marteinn Margrétarson stoltur, en hann hefur hafið framleiðslu á risavöxnum brjóstapúðum unnum úr íslenskum marglyttum.
„Marglyttuholdið eru miklu léttara en sílíkonið og þess vegna er hægt að hafa púðana miklu, miklu stærri – sem er auðvitað það sem þetta snýst um. Það þarf enginn að skammast sín fyrir að sveifla þessum á undan sér,“ og sýndi blaðamanni nokkrar mjög áhugaverðar ljósmyndir máli sínu til stuðnings.
Marteinn vildi lítið tjá sig um hvernig gengi að koma púðunum í verð, en sagði alla markaði galopna og að „menn væru nú bara eitthvað hinsegin“ ef þeir keyptu þetta ekki.
Gott á grillið
Grillaðir útrásarvíkingar á silfurfati. Fyrstir koma, fyrstir fá.
E.H.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.