Ný skilaboð bárust í gærkvöldi frá Osama bin Laden, en nokkuð er síðan skýrt var frá því í fréttum að von væri á nýjum skilaboðum frá útilegumanninum síkáta.
Skilaboðin bárust á myspace-síðu Markúsar Magnasonar, bílasala og kunningja Osama frá námsárum þeirra í Gautaborg. Skilaboðin fara hér á eftir:
Yo MarkíMark! Gegt stuð á Ibiza. Soldið sona heitt en alveg ísíbrísí, júnó háitgós. Pís!
Nei djók. LOL
P.s. takk fyrir addið ;)
Frakkar
þið eruð aumingjar. Með óvinakveðju, Þjóðverjar.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.