Gunnar Jóhannsson endurskoðandi hélt í dag svo kallaðan frjálslegan föstudag á vinnustað sínum, en hann rekur eigið fyrirtæki í miðbæ Kópavogs og er þar eini starfsmaðurinn. Gunnar mætti til vinnu í þýskum þjóðbúningi, svokölluðum „dirndl“, sem áður var í eigu ömmu hans, Gertrude.
Mæltist þetta uppátæki almennt vel fyrir meðal starfsmanna annarra fyrirtækja í húsnæðinu, sér í lagi Bjarka Jónatanssonar, auglýsingahönnuðar og kunningja Gunnars. „Það er bara gaman að þessu, gott fyrir stemmninguna í húsinu,“ sagði Bjarki.„Þetta er líka svaka smart búningur, meiraðsegja bara soldið hot.“
„Þetta lífgaði sannarlega upp á starfsandann í fyrirtækinu,“ sagði Gunnar. „Ég ekki frá því að frjálslegur föstudagur geti orðið að hefð í framhaldinu, spurning hvort maður mæti ekki bara í toga næst..?“
Búraútsala
Eigum fyrirliggjandi mikið af búrum í öllum stærðum og gerðum. Einnig byggjar á sanngjörnu verði. Gæludýraverslun Bárðar.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.