Ýmsir minnihlutahópar hafa gagnrýnt harðlega úthlutun ráðherrastóla í nýju ráðuneyti Geirs Haarde. Einkum eru það aldraðir, dvergvaxnir, örvhentir, kyn- og áttavilltir, blindir, holdsveikir og víðáttufælnir sem telja brotið á sér - en einnig hafa vampírur, óreglumenn, anarkistar og sjófarendur látið í sér heyra.
Það eru raunar einungis tvær fylkingar sem virðast nokkuð ánægðar með sinn hlut, konur og geimverur - en þeir hópar eiga sem kunnugt er þrjá fulltrúa hvor.
Skápahommar
Erótísku vasaljósin eru komin aftur í öllum stærðum. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.