SVR hefur gert samning við Árna Sigfússon fyrrverandi borgarstjóra um að vera andlit fyrirtækisins í nýrri auglýsingaherferð sem hleypt verður af stokkunum á næstunni.
"Þetta er voða skemmtilegt," sagði Árni eldhress í viðtali við Baggalút. "Ég verð að sjálfsögðu formaður FÍB áfram, ég er bara að gera mig sýnilegri fyrir komandi kosningar, en þá verð ég kosinn bæjarstjóri Reykjanesbæjar."
Samningurinn er gerður í kjölfar þess að SVR rifti sams konar samningi við Arne Århus hoppara eftir að hann var sektaður fyrir of hraðan akstur þegar hann var að "spara tíma".
Heróín
Eldri borgarar, munið heróínkynninguna í kvöld. Fyrstir koma fyrstir fá.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.