Frétt — Enter — 11. 1. 2007
Ýmsar töfralausnir mögulegar í Írak
Davíð var að venju í fullum skrúða þegar ljósmyndara bar að garði.

Töfralæknirinn Davíð, einn þriggja starfandi töfralækna á Landspítalanum, segist hissa á ummælum George W. Bush, Bandaríkjaforseta, að enga töfralausn sé að finna á vandamálum sem skapast hafa í Írak.

Segir hann að þvert á móti komi ýmsar töfralausnir til greina, misflóknar og kostnaðarsamar að vísu. T.d. mætti, með litlum tilkostnaði breyta öllum hlutaðeigandi í saltstólpa, sem hann segir „aldrei klikka“.

Sjálfur segist Davíð frekar mæla með því að svokölluð „viðvarandi ástar- og umburðarlyndisálög“ séu lögð á alla íbúa landsins - að því gefnu að nægjanlegt jófrúarblóð, eða um 120.000 lítrar fáist til verksins.

TÓTI!

Þú ert ekki pabbinn.

Þuríður.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: