Vilberg Jónsson, bakarameistari, náði í gær samkomulagi við stjórn Norðurljósa hf. um að taka yfir rekstur á öllum útvarpsstöðvum þeirra. "Ég hef alltaf verið áhugasamur um útvarp," sagði Vilberg. "...það er alltaf kveikt á því hér í bakaríinu og svona. Svo heyrir maður fólk vera að tala um hvað þetta sé nú mikið rusl og svona, þannig að ég fór að spá."
Vilberg hyggst flytja allan reksturinn í kaffistofu bakarísins og "...skjótast í útsendingar milli lagninga", eins og hann orðar það.
Hann hyggst eingöngu spila köntrí.
Tilkynning frá Herjólfi
Ég er hættur að elska.
Kv.
H
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.