Hinn kunni kvikmyndaleikari Harrison Ford er nú staddur hér á landi í tilefni af hljómleikum Köntrísveitar Baggalúts á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves, sem fram fara á morgun. Ford er sem kunnugt er mikill áhugamaður um köntrítónlist, einkum þó íslenskt sjávarútvegs- og innfjarðaköntrí af gamla skólanum og hlakkar hann að sögn afar mikið til hljómleikanna.
Ford hefur oft áður komið hingað til lands, vegna fyrrnefnds áhuga á köntrítónlist, en einnig vegna mikils áhuga hans á íslenskri matarhefð - einkum sláturáti.
Leðurblökumenn
Fjölmennum í hópferð á kvikmyndina skemmtilegu, og raunsæju, um Rökkurriddarann. - Félagið
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.