Félagarnir Bergur Traustason, bifvélavirki og Ragnar Friðriksson,múrarameistari, opuðu nú um helgina nýja vina- og félagsmiðstöð iðnaðarmanna, sem þeir kalla Knúshúsið.
Er miðstöðin „ætluð öllum einmana og blíðuleitandi iðnaðarmönnum sem ekki hafa alltaf kost á því að fá gott knús eða faðmlag eftir erfiðan vinnudag,“ eins og segir í tilkynningu.
Segja þeir félagar viðbrögðin hafi verið afar góð um helgina og greinilegt að þörfin fyrir miðstöð af þessu tagi var orðin afar brýn.
Draugar athugið
erum með mikið af fallegum eignum í sölu víða á höfuðborgarsvæðinu.
Félag fasteignasala.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.