Mannréttindanefnd Reykjavíkur telur sjónvarpsauglýsingu Orkuveitunnar stangast á við mannréttindastefnu borgarinnar.
Í bókun nefndarinnar segir að í auglýsingunni komi fram ýktar staðalmyndir kynjanna; fullklæddir karlar velti fyrir sér undrum vísindanna á meðan léttklæddar konur dansi um sem skrautmunir.
Sóley Tómasdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í mannréttindanefnd, segir þó mestu máli skipta „hversu ógeðslega hallærisleg auglýsingin er. Manni verður bara flökurt. Það er brot á mannréttindum að láta fólk horfa á þetta.“
Stúlka
óskast til að viðra geðsjúkan fjöldamorðingja og tyrkneskan úlfhund einu sinni á dag. Gott kaup.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.