Frétt — Herbert H. Fritzherbert — 11. 1. 2002
Góður ósigur gegn Sádum
Mohammed El Muesli skoraði eina mark heimamanna beint úr innkasti

Íslenska landsliðið í knattspyrnu tapaði naumlega fyrir Sádi Aröbum 1-0 í gær. Arabarnir hafa mikla knattspyrnuhefð og lið þeirra er mjög gott, sigraði til að mynda Færeyjar í fyrra. Atli Mikson, landsliðsþjálfari, var að vonum ánægður með ósigurinn. “Strákarnir stóðu sig afar vel og mórallinn er mjög góður. Við höfum eignast marga vini hérna í miðausturlöndum og svo fékk ég eiginhandaráritun hjá Berti Vogts í fyrradag, en hann er mjög frægur þjálfari”

Nornaveiðimenn athugið

Nornaveiðileyfin fást hjá okkur. Einnig nornablístrur, -gildrur og -bálkestir í miklu úrvaldi.

Galdrabrennsla Gunnars.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: