Tiltölulega vel varðveitt Idolstjarna fannst við uppgröft á Indlandi í gær.
Idolstjörnur voru tilbeðnar af frumstæðum þjóðflokkum fyrir þúsundum ára meðan tónlistarsmekkur manna var á algeru frumstigi. Þær lifðu einkum sníkjulífi og voru afar skammlífar.
Seinna, þegar þróun mannskepnunnar tók fram úr öðrum tegundum prímata, snerist almenningur gegn þessum sérkennilegu verum og útrýmdi með öllu.
Pabbi þarf að vinna
Köntrískífan Pabbi þarf að vinna er komin í verslanir okkar. Ath. vegna gífurlegrar eftirspurnar er aðeins boðið upp á eina skífu á mann - konur og börn ganga fyrir.
Karnabær.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.