Frétt — Enter — 4. 4. 2006
Innrás af hafi
Maðurinn hefur ekki áður komið við sögu lögreglu.

Karlmaður á sjötugsaldri, vopnaður sjálfskeiðungi, gekk í morgun á land í Gróttu með það fyrir augum að hernema Seltjarnarnesið - og síðar allt landið.

Maðurinn, sem var bersýnilega mjög norskur, var yfirbugaður af hópi grunnskólabarna sem voru í fjöruferð - án teljandi átaka. Enda innrásarmaðurinn að vonum bæði blautur og þrekaður.

Við yfirheyrslur kvaðst maðurinn vera sjálfstætt starfandi hryðjuverkamaður - sem hefði látið freistast til innrásar hingað vegna fyrirhugaðs brotthvarfs bandaríkjahers.

Til sölu

Vel með farinn fagurrauður Hummer jeppi. Lítið ekinn. Laus strax.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: