Hann er ekki sonur minn. Ég þoli hann ekki, sagði myrkrahöfðinginn Satan þegar blaðamaður Baggalúts innti hann eftir viðbrögðum við því að lag einkasonar hans væri komið á topp bandaríska smáskífulistans.
Umræddur sonur er enginn annnar en tónlistarmaðurinn og hjartaknúsarinn James Blunt sem Kölski átti með erfðabreyttu kindinni Dolly á sínum tíma.
Ræningjar
eigum mikið af nálum fyrirliggjandi, prjónastofan Snurða.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.