Leyniþjónustan á Keflavíkur-flugvelli hefur gert opinber gögn sem bendla nokkra Íslendinga við sósíalistann listhneigða, Stalín, sérstaklega þó allþekktan blaðamann og þjóðrýni, Egil Helgason en hann mun hafa skipulagt hin frægu Stalínsverðlaun árið 1953, árið sem Halldór Guðjónsson frá Laxnesi hlaut þau. Egill neitar vinfengi sínu við Stalín en eins og sjá má af meðfylgjandi mynd var samstarf þeirra allnáið á sínum tíma.
Til sölu
Lítið notuð æra. Fæst fyrir lítið fé.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.