Frétt — Myglar — 9. 1. 2002
Sönnun fundin fyrir lífi á öðrum hnöttum
Enn er ekki vitað hvor er leiðtoginn

Þrotlaus leit SETI (Search for Extra-Terrestrial Intelligence) stofnunarinnar að merkjum frá öðrum lífsstjörnum hefur loks borið árangur. Mikil gleði braust út meðal vísindamanna stofnunarinnar nú í dag, þegar í ljós kom að útvarpssjónauki í Mexíkó hafði numið dauft en síendurtekið merki, u.þ.b. 4Kb að stærð. Við rófsgreiningu merkisins kom í ljós að það var mynd og er hún sýnd hér til hliðar.

Frjálslyndir og óháðir óskast

þurfa að geta tekið að sér ýmis nefndarstörf sem fyrst.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: