Frétt — N?mi Fannsker — 22. 12. 2005
Kerfið sinnir ekki málefnum skreytifíkla
Skreytifíklar eru ofast afar illa haldnir fyrir jólin

Sárlega vantar úrræði fyrir skreytifíkla, að sögn Matthíasar Magnússonar - formanns Félags aðstandenda skreytifíkla. Hann telur ríkisvaldið verða að grípa inn í: „Það gengur náttúrulega ekki að fjársúkir menn gangi hér um göturnar yfir hátíðarnar dragandi á eftir sér jólaseríur og klínandi á sig öllu því jólaskrauti sem þeir komast yfir“, segir Matthías. Hann segir ástandið sérlega slæmt í ár. „Jájá - við erum að sjá fíkla allt niður í þrítugt, menn sem eru svo illa haldnir að þeir eru hengjandi á sig karamellubréf, flöskutappa og hvaðeina bara til að komast í rúss. Þessu verður bara að linna“.

Api

28 kg. api fæst gefins. Bítur. Fast. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: