Gunde Stefanson, hálfíslenskur sameindaguðfræðingur og prófessor við Kaþólska háskólann í San Bernadino, hefur sett fram nýja og byltingakennda kenningu sem hann segir sameina allar fyrri kenningar um tilurð og eiginleika jólanna.
Kenningin gengur í stuttu máli út á það að jólasveinninn sé sonur guðs og að lærisveinar hans séu þeir Stekkjastaur, Giljagaur, Stúfur, o.s.frv.
Greiðendur afnotagjalda RÚV
ekki missa af táknmálsfréttum. Nýjar þulur. Ný tákn.
Ríkisútvarpið – Sjónvarp
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.