Frétt — N?mi Fannsker — 9. 11. 2005
Alinn upp af lesbíum
Lesbíudrengurinn var nokkuð styggur á blaðamannafundinum í morgun

Ungi maðurinn sem fannst illa til reika í kvennaklefa Sundhallarinnar í Reykjavík fyrr í mánuðinum fullyrðir að hann hafi verið alinn upp af lesbíum. Slíkt er ekki ókunna í dýraríkinu, en vitað er um börn sem alin hafa verið upp af úlfum og jafnvel svínum.

„Lesbíudrengurinn“, sem svo er kallaður, lýsti á fundi með blaðamönnum þeirri meðferð sem honum var gert að sæta meðan á dvöl hans meðal lesbíanna stóð - en þær ólu hann upp um 14 ára skeið.

„Þær létu mig gera skelfilega hluti“, sagði drengurinn. „Ég þurfti að raka á þeim fótleggina, bursta í þeim tennurnar og klippa á þeim neglurnar. Þetta var hræðilegt. Hræðilegt bara!“

Lesbíudrengnum hefur verið komið í fóstur í Húsdýragarðinum.

Karlkyns sjáandi

með gott samband við ríflega 100 lífstjörnur óskar eftir að komast í samband við góða, skilningsríka konu á miðjum aldri. Má gjarnan reykja.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: