Frétt — Enter — 24. 10. 2005
Netsamband liggur víða niðri
Þrátt fyrir að tölvuver Háskólans séu nú nær mannlaus hefur netnotkun þar aukist um 1300% síðan í morgun.

Netsamband liggur niðri víða þessa stundina og er unnið að viðgerðum.

Ekki er ljóst hvað veldur en að sögn sérfræðinga virðist sem álag á netið hafi skyndilega aukist gífurlega skömmu eftir hádegi.

„Við bara botnum ekkert í þessu,“ segir talsmaður viðhaldsdeildar FARICE-sæstrengsins, sem brann yfir vegna álags nú fyrir nokkrum mínútum síðan.

„Það er eins og að á slaginu 10 mínútur yfir tvö hafi hálfur bærinn byrjað að dánlóda klámi.“

Drekaflugur

Ertu á leið á drekaveiðar? Eigum mikið af góðum, handunnum flugum - einnig spúna og maðka. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: