Frétt — N?mi Fannsker — 20. 10. 2005
Faðir Übersexjúalismans staddur hér á landi
G. Marcellus Holme: „Übersexjúal eru feitir, sköllóttir, smekklausir karlar sem hugsa nokkuð vel um útlitið“

Austurríkismaðurinn G. Marcellus Holme, oft nefndur „faðir Übersexjúalismans“, er staddur hér á landi á vegum Bændasamtakanna og JC-hreyfingarinnar. Hann mun halda fyrirlestur undir heitinu Übersexualism Theory- a Sub-gender Transmisculous Approach á veitingastaðnum Múlakaffi á laugardaginn klukkan 21.30. Allir eru velkomnir.

Skápahommar

Erótísku vasaljósin eru komin aftur í öllum stærðum. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: