Hinn kunni furðufugl Már Illum, betur þekktur sem 'fuglinn í fjörunni' lést í morgun, 87 ára að aldri.
Már hefur um langt árabil hlotið gagnrýni og ákúrur bæði almennings og stjórnvalda vegna árlegrar veiðikeppni sem hann hefur staðið fyrir, þar sem hann sjálfur er fórnarlambið.
Hafði hann fyrir sið að ösla út í sjó á bleikri húfu einni klæða og reyndi að forðast að lenda í snörum og öðrum gildrum sem keppendur lögðu fyrir hann í fjöruborðinu.
Að þessu sinni tókst honum þó ekki að losa sig áður en flæddi að.
Bæjaryfirvöld á Húsavík votta fjölskyldu Más samúð sína, en auglýsa um leið eftir nýju fífli til að hressa upp á bæjarlífið.
Belgísk vaffla
fannst á mótum Lækjargötu og Bankastrætis aðfaranótt sunnudags. Eigandi og/eða forráðamaður er vinsamlegast beðinn um að gefa sig fram. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.