Toggi, sumarstrákur Veðurstofu Íslands, sá ekki skugga sinn þegar hann var tekinn úr holu sinni í morgun og færður undir bert loft.
Þetta þýðir, samkvæmt þjóðtrúnni, að vetri lýkur ekki fyrr en í fyrsta lagi í byrjun apríl.
Toggadagurinn svokallaði hefur nú verið haldinn hátíðlegur í 45 ár og hefur Toggi hingað til aldrei séð skugga sinn.
Gefins
Fullt af gömlu ónýtu drasli. Einnig fæst ódýrt á sama stað 1000 púsla púsluspil sem vantar 327 púsl í.
A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.