Friðrik Ólafsson, stórmeistari í skák, tapaði um helgina fyrir konu. Er þetta í fyrsta skipti í alþjóðlegri sögu skipulagðra mótshalda í skák sem skákmeistari tapar fyrir konu.
Að sögn forseta Alþjóðaskáksambandsins (FIDE) hefur ekki verið ákveðið hvernig brugðist verður við þessum óvæntu úrslitum - en heimildamenn Baggalúts innan sambandsins eru á einu máli um að Friðrik verði sviptur stórmeistaratign og líklegt að Skáksamband Íslands verði gert brottrækt úr sambandinu.
Til sölu
pennar, servíettur, músamottur og brjóstsykur - merkt Íslandsbanka. Sanngjarnt verð.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.