Frétt — Enter — 14. 11. 2004
Létu gamlan draum rætast
„Hermann“ (t.v.) og „Guðlaug“

„Það er rétt, við létum loksins verða af þessu,“ sagði Hermann Gortsson, auglýsingateiknari, hróðugur en hann og eiginkona hans Guðlaug skelltu sér um helgina í kynskiptiaðgerð - fyrst íslenskra hjóna, svo vitað sé.

„Þetta stóð raunar alltaf til, en við gerðum aldrei neitt í því - þannig. Létum okkur bara nægja klæðskipti og svoleiðis. Þetta er auðvitað rándýrt,“ bætti Hermann við og telur ólíklegt að þau hefðu látið verða af þessu hefðu þau ekki rekið augun í sérstakt tveir fyrir einn tilboð á Landsspítala-Háskólasjúkrahúsi.

„Og ef okkur líkar þetta ekki getum við bara látið breyta okkur aftur. Það er ekkert mál, skilst mér.“

Nærgætin

stúlka óskast á gott heimili í Vesturbænum. Þarf að hafa reynslu af umönnun og umhirðu urðarkatta.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: