Gos hófst í Grímsvötnum í nótt og bendir allt til þess að um svokallað eldgos sé að ræða. Nokkur gufa er á svæðinu og íbúum því ráðlagt að vera ekki mikið á ferli, nema nauðsyn krefji.
"Já, sko þetta er greinilega einhverskonar gos, sennilega eldgos", sagði Tumi Tumason, vísindamaður í samtali við Baggalút í nótt og vildi ráðleggja íbúum Grímsvatna að halda sig innandyra eins og hægt væri og notast við móðufrí gleraugu og vatnsheldan hlífðarfatnað ef þeir ættu erindi út.
Spámaður
óskast til að leiða lítinn söfnuð. Ævilangri tryggð heitið. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.