Frétt — Herbert H. Fritzherbert — 19. 5. 2004

Alþjóðlegu öfgasamtökin Amnesty International ásökuðu í gær forsætisráðherra Ísrael, íslandsvininn góðkunna Aríel Sharon, um mannréttindabrot og stríðsglæpi. Að sögn stjórnvalda í Ísrael er þetta ekki í fyrsta skipti sem Amnesty vegur að Sharon með þessum hætti.

Af þessum sökum hefur ríkisstjórn Ísrael í samráði við bandaríkjaforseta, George W. Bush, bætt Amnesty International á öxul hins illa og verða þau framvegis skilgreind sem hryðjuverkasamtök og meðlimir þeirra undanþegnir ákvæðum Genfarsáttmálans svokallaða.

2 fyrir 1 til Pyongyang

Vegna gífurlegrar eftirspurnar höfum við bætt við fjórum sætum í ævintýra- og sælkeraferð til Pyongyang í N-Kóreu.

Lúdóferðir

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: