Bandaríski leikarinn Mike Rust hefur bæst í hóp þeirra fjölmörgu Hollywood-stjarna sem gagnrýnt hafa stríðið í Írak.
Rust er sennilega þekktastur fyrir hlutverk sitt sem lögregluþjónn #12 í 'Police Academy 3'.
Hann hefur ekki áður haft skoðanir á heimsmálunum, en nú segir hann að sér sé nóg boðið.
Einkamál
síamstvíburar á fimmtugsaldri óska eftir að komast í kynni við eldri karlmann. Með nánari kynni í huga. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.