Frétt — Enter — 7. 12. 2001
Óvæntur jólaglaðningur
Magni var að vonum ánægður með árangurinn

Dr. Magni Morthens, sérfræðingur í tauganetum var í dag verðlaunaður af 'Samtökum Iðnaðarins', en Dr. Magni er 50 þúsundasti starfsmaðurinn sem missir vinnuna í hátækniiðnaðinum á Norðurlöndum á þessu ári.

"Þetta er æðislegt, frábært, rosalega gaman," sagði Magni í samtali við Baggalút. "...fyrst var ég náttúrulega smá spældur að missa vinnuna, en svo frétti ég þetta og þá jafnaði ég mig fljótt."

Verðlaunin felast í spennandi helgarferð til Norðfjarðar og möguleika á atvinnuviðtali hjá SAM-bíóunum í febrúar.

Kærkomnar sumargjafir

Fataefni úr alull í Kr. 80 í fötin. Buxnaefni frá Kr. 35 í buxur. Hvít Kjól- og Smóking-vesti Kr. 30.

::Kærkomnari og nytsamari sumargjafir fær kona naumast gefið manni sínum eða unnusta::

Klæðaverzlun H. Andersen og Sön

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: