Frétt — N?mi Fannsker — 5. 2. 2004
Með störu
Garðar er afar illa haldinn

Garðar Hallgrímsson, forritari hefur verið illa haldinn af störu í á þriðja mánuð. Störuna fékk hann þegar hann sá lesbíska ofurfyrirsætu kyssa hjúkrunarkonu á veitingastað í kaupmannahöfn í haust.

"Já - sko þá helltist bara yfir mig þessi líka rosalega stara og ég hef bara ekki losnað við hana", sagði Garðar í spjalli við blaðamann í morgun. Hann hefur að eigin sögn reynt margt til að losna við störuna, m.a. horft á myndbandsupptökur af Megasi og Gunnari Inga Birgissyni.

"Svo var ég aðeins farinn að lagast og fannst ég svona vera að ná tökum á störunni - kemur þá ekki Janet Jackson og berar á sér brjóstið í beinni útsendingu! Ég náttúrulega datt í sama farið og þarf í rauninni að byrja á núlli bara aftur", sagði Garðar ennfremur en hann hefur orðið sér úti um eintak af heildarútgáfu þáttanna 'Maður er nefndur' til að vinna bug á störunni.

Krónufleyting á Tjörninni í kvöld kl. 20

Mætum og sýnum samstöðu.
Bankaráð Seðlabanka Íslands

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: