Vísindamenn við Háskóla Íslands, stofnun Árna Magnússonar og stofnun Vigdísar Finnbogadóttur kynntu í morgun nýja leið til hverskyns efnismiðlunar - nefúða.
Í tilkynningu frá vísindamönnunum segir að nefúði sé sífellt að verða þróaðri og nú þegar hafi verið fundnar leiðir til að miðla bókmenntum, kvikmyndum og jafnvel minningum á nefúðaformi og að þess sé ekki lengi að bíða að hægt verði að fara á internetið með því að úða því í nef.
"Við gerum auk þess ráð fyrir að geta boðið upp á myndlistarsýningar innan tíðar og tilraunir standa nú yfir á háskólanámi á úðaformi einkum í heimspekideild", segir ennfremur í tilkynningunni.
Atvinna
Lykilstjórnendur óskast. Engin vinna – frábært kaup. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.