Frétt — Spesi — 22. 1. 2004
Tilkynning um auglýsta þjónustu
Ekki er ljóst hvaða þjónustu fyrirtækið er að auglýsa

Fyrirtæki nokkurt hér í bæ hefur beðið Baggalút að koma á framfæri eftirfarandi tilkynningu:

"Verið dugleg að horfa upp í loftið á morgun, því þá mun vera á ferð flugvél sem skrifar í skýin upplýsingar um vefslóð, þar sem tilkynnt verður að í útvarpinu síðar um daginn muni heyrast auglýsing sem auglýsir auglýsingu sem kemur til með að birtast í öllum helstu dagblöðum landsins, en þar eru landsmenn hvattir til að fylgjast grannt með sjónvarpsauglýsingu frá okkur þar sem auglýst verður ný þjónusta sem við höfum upp á að bjóða fyrir áhugasama."

Bleik ský

Lítið notuð bleik ský til sölu. Svífa 5–10 metra, halda 100 kg.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: