Frétt — Enter — 20. 1. 2004
Uppþot í söluturni
Mynd úr öryggismyndavél

Örsmá kviknakin mannvera réðst inn í söluturn í Grafarvogi snemma í morgun. Mannveran vopnuð sleikibrjóstsykri af tegundinni 'Chupa' og lét öllum illum látum.

Að sögn starfsmanns náðist að yfirbuga þennan óvenjulega gest eftir að honum skrikaði fótur í sinnepsklessu á afgreiðsluborðinu og rotaðist. Hann var settur í grænan sælgætispoka og færður lögreglu.

Lögregla vill ekkert tjá sig um málið að svo stöddu og vísar algerlega á bug þeim sögusögnum að hér hafi vísindamaðurinn uppátækjasami Kári Stefánsson verið á ferð.

Hvítþvottur

Tökum að okkur vandaðan hvítþott fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Mikið úrval af fyrirtaks hreinsiefnum. Fullum trúnaði heitið.

Þvottahús Þórmundar og Tuma

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: