Frétt — Spesi — 20. 11. 2003
Samtök tapsárra stofnuð
Fundarmenn voru fljótir að yfirgefa staðinn að fundi loknum, enda vildi enginn vera síðastur

Tapsárir víða af landinu komu saman á fundi í gær en þá voruð stofnuð Hagsmunasamtök tapsárra Íslendinga. Er samtökunum ætlað að aðstoða félaga sína við að leita réttar síns þegar þeim finnst á þeim brotið og veita þeim áfallahjálp sem reynt hafa allt og þurfa að sætta sig við tap sitt.

Efnt var til formannskosninga nokkrum sinnum á fundinum, en á endanum var ákveðið hafa samtökin formannslaus eftir að þeim sem náðu kjöri var hverjum á eftir öðrum vísað úr samtökunum á þeim forsendum að þeir uppfylltu ekki lengur nauðsynleg skilyrði.

Meðal stofnfélaga voru Viggó Sigurðsson handknattleiksþjálfari, Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi og Bolli Thoroddsen, frambjóðandi til formanns Heimdallar, auk fjölmargra fyrrum keppenda í hinum ýmsu söngva- og fegurðarsamkeppnum.

Óvissuferð

Æðisleg og æsispennandi óvissuþrenna: Ekvador, Venezúela og Kolumbía. Upplifðu dásemdir Suður-Ameríku! Rauðvín, fögur fljóð og kókaín eins og þú getur í þig látið!
- Lúdóferðir

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: