"..það er er rétt, við gerðum með okkur samning til tveggja mánaða," sagði Helgi Jónsson - en hann fylltist grunsemdum eftir að læknir krafði hann um ástæður fyrir óeðlilegum háþrýstingi.
"Mér þótti bara rétt að fá þessi mál á hreint - ég hef ítrekað rætt við lögregluyfirvöld en þau vilja ekkert fyrir mig gera."
Helgi réði því Trausta Kjerulf, einkaspæjara, til að fylgjast með öllu óvanalegu í líkamsstarfsemi sinni. Trausti þessi er gamall í hettunni og er líklegast hvað þekktastur fyrir að hafa náð myndum af 'barbiekvöldi' frímúrarareglunnar árið 1992.
Einkamál
Eldri, atvinnulaus, einstæð, drykkfelld kona í Grindavík óskar eftir að kynnast sjúklega myndarlegum karlmanni á fertugsaldri sem veit ekki aura sinna tal - með náinn vinskap (kynlíf o.fl.) í huga.
A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.