Rjúpnaveiðimennirnir Búddi, Jói og Heiðmar komust aldeilis í feitt upp við Úlfarsfell nú í gær, þegar þeir náðu að skjóta fallegan kvenfálka. Fálkinn var vel haldinn og með "verðlaunahring frá Náttúrufræðistofnun," eins og þeir félagar komust að orði. Þeir vildu einnig koma því á framfæri að "enga rjúpu væri að hafa og ríkisstjórnin yrði að fara að grípa í taumana."
Spennandi ferðir
á slóðir Osama Bin Laden. Upplifið haustlitina í afgönsku fjöllunum.
-Lúdóferðir-
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.