Frétt — N?mi Fannsker — 5. 11. 2003
Sebrahestafaraldur á Vestfjörðum
Sebrahestar eru blóðþyrst kvikindi - hér má sjá einn hestinn fylgjast með börnum á skólalóð grunnskóla Ísafjarðar

Mikill sebrahestafaraldur geisar nú á Vestfjörðum og muna Vestfirðingar vart annað eins síðan í 'steingeitaplágunni miklu' 1981. Meindýraeyðar hafa verið kallaðir til allstaðar af landinu og íbúar Ísafjarðar, Bolungarvíkur og Þingeyrar hafa verið beðnir um að halda sig innandyra og alls ekki hleypa torkennilegum hófdýrum inn á heimili sín.

Vantar þig heimilistæki?

Erum að taka við pöntnum fyrir innflutning ársins 2015. Umsóknareyðublöð í þríriti fást afhennt gegn skriflegri beiðni (með hefðbundnum 3 mánaða fyrirvara).

Neyslu- og innflutningsstýringarráð ríkisins

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: