"Ég las um þetta kellingaátak í blaðinu - og hló nú með sjálfum mér að því að fólk gæti fengið launahækkun bara út á kynferði sitt," sagði Friðrik Unnarsson (nú Unnarsdóttir) í samtali við Baggalút, en hann gekkst um helgina undir erfiða kynskiptiaðgerð.
"..svo ákvað ég í einhverju bríaríi að prófa þetta bara sjálfur - svo ég fékk vin minn, sem er dýralæknir, til að breyta mér í konu. Og viti menn - nú er ég kominn með talsvert hærri laun en karlar í sambærilegri stöðu."
Samkvæmt heimildum Baggalúts er þetta rétt - en það fylgdi ekki sögunni að Friðrik, sem áður var framkvæmdastjóri, var færður yfir í skúringar.
Mannætur athugið!
Námskeiðið: „hættið að naga neglurnar á þremur dögum“ hefst á nýjan leik í þessum mánuði. Takmarkaður fjöldi þátttakenda.
FÍM
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.