Böðvar Huldarsson, gullsmiður - og Helga Bjartmarsdóttir, flugfreyja, voru í gær gefin saman við hátíðlega athöfn í Bústaðakirkju. Ráðahagurinn kom mörgum í opna skjöldu þar sem mikill aldursmunur er á þeim hjónum eða rúm 56 ár. Hafa margir því leitt að því getum að peningar og völd hafi þarna skipt meira máli en ástin og kærleikurinn.
Aðspurður um þessar aðdróttanir sagði Böðvar hreinskilnislega: "Hvað get ég sagt - ég er skítblankur og hún er viðurstyggilega rík!"
Herbergi
45 fm til leigu með öllum þægindum, þ.m.t. salerni. Hentugt fyrir þingmann. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.