Frétt — N?mi Fannsker — 18. 9. 2003
HÍ rannsakar eðli tímans
Hannes og aðstoðarkona hans velta fyrir sér eðli tímans

Hópur vísindamanna við Háskóla Íslands, vinnur nú að viðamikilli rannsókn á eðli tímans. Við rannsóknina notast hópurinn við fullkomnustu upplýsingatækni sem völ er á, veggklukku af Seiko-gerð og tvö Timex-armbandsúr með skeiðklukku. Að sögn Hannesar Jóhannessonar, verkefnisstjóra, miðar rannsókninni vel:

"Jú, það er rétt, við erum hér að rannsaka sjálft eðli tímans og beinast rannsóknir okkar einkum að því að finna vísindalega ástæðu þess hvers vegna klukkan er alltaf hálfþrjú á nákvæmlega sama tíma alla daga ársins".

Verkefnið er sjálfstætt framhald verkefnis sem hópurinn vann á síðasta ári en þar var sjónum beint að eðli hraðans:

"Já, síðasta verkefni fólst í því að finna út hvort kyrrstaða væri mælanleg - þ.e.a.s. hvort hægt væri að tala um mismikla kyrrstöðu á sama hátt og hraða. Niðurstaða okkar var sú að kyrrstaða er mjög mismunandi og fer algerlega eftir því á hve miklum hraða umhverfi mælds hlutar er", sagði Hannes í ruglingslegu samtali við Baggalút.

Stúlka

óskast til að viðra geðsjúkan fjöldamorðingja og tyrkneskan úlfhund einu sinni á dag. Gott kaup.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: