Hinn kunni kennari og þjóðmálarýnir Hannes Hólmsteinn er genginn í klaustur í útlöndum. Klaustrið þykir býsna frjálslynt og kann Hannes afskaplega vel við sig þar.
"Jú, þetta er rétt, ég kann mjög vel við mig í þessu útlenska klaustri. Þetta eru allt ljómandi hressir strákar hérna sem eru með kenninguna á hreinu. Það er ýkt gaman að slappa af með þessum strákum og svo hefur kaþólskan af einhverjum ástæðum alltaf höfðað mjög sterkt til mín", sagði Hannes í samtali við blaðamann Baggalúts. Hann hefur tekið sér nafnið bróðir Holmstein að sið kaþólskra.
Nornaveiðimenn athugið
Nornaveiðileyfin fást hjá okkur. Einnig nornablístrur, -gildrur og -bálkestir í miklu úrvaldi.
Galdrabrennsla Gunnars.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.