Valtýr Valdísarson endurskoðandi og trúbadúr, náði í morgun að hefta útbreiðslu sérlega skæðs tölvuorms sem tekið hafði sér bólfestu í tölvu hans.
"Þegar ég mætti í morgun sá ég strax að ekki væri allt með felldu - ég þekki mína tölvu", sagði Valtýr í samtali við ljósmyndara Baggalúts í morgun. Valtýr brást skjótt við og yfirbugaði tölvuna sem honum þótti til alls líkleg - enda greinilega ekki með réttu ráði: "Ég tók hana fangbrögðum og náði að yfirbuga hana, en þetta er býsna öflug tölva sko - ég þekkti hana ekki fyrir sömu tölvu og varð því að taka nokkuð hressilega á henni".
Tölvan hefur verið tekin úr sambandi.
Lítið notað
jólatré fæst gefins. Mikið skreytt. Afgreiðsla vísar á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.