Frétt — Myglar — 16. 8. 2003
Misskilinn sælkeri allur
Idi Amin meðan allt lék í lyndi

Sælkerinn og hnefaleikamaðurinn Idi Amin er látinn, u.þ.b. áttræður að aldri.
Amin komst til valda í Uganda þann 25. janúar 1971 er hann rændi völdum af þáverandi forseta meðan sá var í sumarfríi, og var hann einráður allt til ársins 1979.
Sérstæðar matarvenjur Amins og sú árátta hans að gefa undirsáta sína krókódílunum í Níl til átu í tugþúsundatali gerði hann að frekar óvinsælum leiðtoga og er hann líklega fáum harmdauði.

Smjörklípur

af öllum stærðum, með og án salts. Nást seint og illa úr fatnaði. Afgreiðsla vísar á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: