Ungur íslenskur knattspyrnumaður náði þeim stóra áfanga að skora mark á erlendri grundu í gærkvöldi. Pilturinn heitir Eiður Guðjónsson og spilar fyrir enskt félagslið frá vestur London. Atburðurinn átti sér stað á litlum knattspyrnuvelli í innsveitum Slóveníu. Mun markið hafa vakið mikla kátínu samherja og stóðu fagnaðarlætin í tæplega eina mínútu. Af gefnu tilefni skal tekið fram að Eiður er ekki sonur Guðjóns Þórðarsonar af Akranesi, sem þykir annars góður til undaneldis í knattspyrnuheiminum.
Tölvupóstur!
Tek að mér að bera út tölvupóst fyrir einstaklinga og fyrirtæki. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.