Frétt — N?mi Fannsker — 2. 5. 2003
Baggalútur aðstoðar óákveðna kjósendur
Frambjóðendur eru e.t.v. ekki mikið fyrir augað - en vonandi leynist einhver glæta undirniðri

Baggalútur hefur hleypt af stokkunum sérstakri atkvæðavél sem úthlutar atkvæðum óákveðinna kjósenda af handahófi og fyrir hreina tilviljun. Vill hann með þessu móti leggja sitt af mörkum í kosningabaráttunni og aðstoða þá fjölmörgu sem skilja hvorki upp né niður í þeirri einsleitu kosningabaráttu sem nú stendur yfir.
Kjóstu hér.

Síðuna má einnig nálgast á slóðinni kosningar.com

GEFINS!

700 lítra tunna af þvottavélaló fæst gefins!
Á.k.y.h.s.p.m.
Einar.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: